Heimsókn í Lindsay heildverslun !

21.11.2022

Eftir að félagsmenn höfðu farið á sýninguna Stóreldhúsið í Laugardalshöll var okkur boðið í heimsókn til Lindsay í Klettagörðum 23 og þar var tekið á móti okkur með miklum höfðingskap, fullt af góðgæti í mat og drykk. Forstjóri Lindsay fór yfir sögu fyrirtækisins og sagði m.a að Skotinn John Lindsay kom til landsins 1924, þá 28 ára gamall starfsmaður bresks fyrirtækis, í þeim erindagjörðum að kaupa fisk fyrir fyrirtækið. Hann féll þegar fyrir landi og þjóð og settist að lokum hér að. Fyrstu ár sín á Íslandi bjó hann á gamla Hótel Íslandi, sem var þar sem nú er Ingólfstorg í miðbæ Reykjavíkur. Lindsay stofnaði umboðsverslunina John Lindsay árið 1926 og 

var lengst af með reksturinn í litlu herbergi á 2. hæð í Austurstræti 14. Hann kvæntist Sigurborgu Ólafsdóttur og bjuggu þau við Hraunteig.
Smátt og smátt fór John Lindsay að sjá tækifæri til sölu á ýmsum öðrum breskum, og kannski sérstaklega skoskum vörum.  Thermos hitabrúsar var eitt af því fyrsta.  En Thermos umboðið hjá Lindsay er elsta söluumboð utan UK í heiminum.
Árið 1966 keypti Guðjón Hólm hdl. ásamt félögum sínum reksturinn.  Fyrir voru þeir allir í öðrum rekstri, ýmist saman eða hver fyrir sig.  Þar á meðal var rekstur fyrirtækjanna Reykhúsið, Kjötver, Lífstykkjabúðin og Sæbjörg.  Guðjón rak lögmannsstofu í Reykjavík en hafði samhliða gegnt um tíma stöðu framkvæmdastjóra Tívolísins í Vatnsmýrinni.
Í upphafi var fyrirtækið umboðsverslun. Lagerhald og vörudreifing var því í lágmarki. Þá var sala á byggingarvörum fyrirferðamest í sölu fyrirtækisins þó matvaran hafi þó alltaf fylgt með frá upphafi.
Lindsay er með mikið af vörum fyrir veitingastaði og stóreldhús, td Toro og Royal á svæðinu var Kokkur frá Noregi sem galdraði fram rétti og Dóri DNA fór með gamanmál, þara áttum við frábæra kvöldstund með starfsfólki Lindsay fram eftir kvöldi og þökkum við kærlega fyrir þessar frábæru móttökur.

Skoda má heimasíðu fyritækisins hér www.lindsay.is

TS.