Aðalfundur YEHÍ 2024
15.10.2024Nú er komið að aðalfundi félagsins sem verður haldinn á Hótel Íslandi við Ármúla fimmtudaginn 31 október kl 09:00. Að venju verður farið á sýninguna Stóreldhúsið í Laugardalshöll og fleira gert til skemmtunar og fróðleiks, nánari dagskrá verður send út á næstu dögum.
Það er tekið við skráningu á netfangið tomas1@simnet.is.
Þar sem starfsemi hefur verið með minnsta móti frá Covid þá tökum við okkur til núna og förum að starfa á fullu og ekki veit ég hvernig netfangalistinn er í dag þannig að endilega látið alla félagsmenn vita sem þið eruð í sambandi við.