Aðalfundur YEHÍ 2024
01.11.2024Okkar þing og aðalfundur var haldinn á Hótel Íslandi laugardaginn 31 október 2024. Tómas Sveinsson ritari stjórnaði fundi í forföllum formanns Eyjólfs Kolbeins en hann veiktist í aðdraganda þegar ákveðið var að halda fund, eftir formála og ósk um skjótann bata hjá formanni félagsins var gengið til fundarstarfa og að venju var byrja á því að kjósa fundarstjóra og fundarritara og var upp á Birni og Tómasi til starfanns og var það samþykkt.
Næst var komið að lestri síðasta fundar sem haldinn var á Mörkinni 2022 og sá Tómas ritari um lesturinn og að lokum var fundagerðin borinn upp til samþykkis og var hún samþykkt, en ég held að fundarmenn hafi ekki munað eftir
síðasta fundi því það er svo langt um liðið.
Tómas ritari flutti skýrslu stjórnar í fjarveru formanns og var fljót gert að stikla á stóru um starfið sem hefur verið í lágmarki síðan í covid. Garðar Halldórsson fór síðan yfir enduskoðaða reikning félagsins en þetta voru reikningar fyrir s.l tvö ár og voru þeir samþykktir án athugasemda enda kanski sama og með skýrslu stjórnar hvort félagsmenn muni allt sem gert var á svona löngum tíma.
Undir liðnum Kosning stjórnarmanna átti að kjósa Formann til tveggja ára
Gjaldkera til tveggja ára, Ritara til tveggja ára, tveir meðstjórnendur til eins árs, Varamaður til eins árs, Skoðunarmaður reikninga til tveggja ára, Skoðunarmaður reikninga til eins árs. Kynningar og fjölgunarfulltrúi til tveggja ára. Það komu engin framboð á móti þeim sem fyrir eru og var stjórni endurkjörinn, en okkar maður í Kynningar og fjölgunarmálum Sigurvin Gunnarsson féll frá fyrir nokkuru og var stungið uppá Haraldi Helgasyni frá Landspítalanum þetta starf og samþykkti hann að taka þetta að sér og félagsmenn sáttir. Fundurinn samþykkti að hækka félagsgjaldið í fimm þúsund krónur en það hefur verið óbreytt til fjölda ára.
Fundurinn ákvað undir liðnum Staðarval þings 2025 að athuga aftur með Stykkishólm og hafa Vestmannaeyjar til vara ef það gengi ekki upp með Hólminn.