Meðalheildarlaun fagfólks !
06.04.2026Meðalheildarlaun félagsfólks í helstu starfsgreinum innan MATVÍS voru á bilinu 816 til 978 þúsund krónur síðastliðið haust. Þetta eru niðurstöður kjarakönnunar félagsins sem lögð var fyrir í september 2025.
Í tilkynningu frá MATVÍS kemur fram að félagið fær
reglulega fyrirspurnir um laun og gefur þessi samantekt góða mynd af stöðunni eins og hún var þegar könnunin var lögð fyrir.
Hæst voru meðallaunin hjá bökurum, þar sem heildarlaun námu að jafnaði 978 þúsund krónum. Næst á eftir komu starfsmenn í mötuneytum með 918 þúsund krónur og í veitingahúsum með 867 þúsund krónur. Þá voru meðallaun í hótelum og gististöðum 823 þúsund krónur og í kjötvinnslu 816 þúsund krónur að jafnaði.
Dagvinnulaun voru hæst í mötuneytum, 4.940 krónur á tímann, en lægst í veitingahúsum, 3.781 króna. Yfirvinna vegur víða þungt í heildarlaunum, til dæmis í veitingahúsum þar sem yfirvinnulaun námu að jafnaði 288 þúsund krónum.
MATVÍS greindi frá.



