Unnar kjötvörur ekki í boði í skólum: „Strang­lega bannað að hafa pylsu­partý“

27.04.2026

Ekki verður lengur boðið upp á unnar kjötvörur í skólum samkvæmt tillögu meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkurborgar sem samþykkt var nú síðdegis. Minnihlutinn kalla tillöguna forræðishyggju en meirihlutinn vísar til þess að unnar kjötvörur séu í dag flokkaðar með áfengi og tóbaki og séu krabbameinsvaldandi. 

Matarstefna Reykjavíkurborgar var fyrsta mál til umræðu á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag en þar tókust borgarfulltrúar á um gagnsemi þess að taka unnar kjötvörur út af matseðlum leik- og grunnskóla borgarinnar. Stefnan felur einnig í sér að boðið verður upp á val um grænmetisrétt í öllum mötuneytum.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, kynnti stefnuna í upphafi fundar en hún segir að unnar kjötvörur séu æskilegar til inntöku að hámarki fjórum sinnum á ári. Því verði þær ekki lengur á boðstólum sem aðalmáltíð bæði í leik- og grunnskólum sem og öðrum þeim starfstöðvum borgarinnar sem þjónusta börn.
Þá var gerð tilraun til að auka grænmetisneyslu í Rimaskóla og var allt grænmeti borið fram aðskilið, í stað blandaðs salats. Við þessa einföldu breytingu jókst grænmetisneyslan úr 3 kg í 47 kg á viku,“ þetta kemur fram í plagginu um stefnuna.
Heiða segir að færst hafi í aukana að fólk kjósi að borða grænmetisfæði og að máltíðir á vegum borgarinnar séu á þriðja tug þúsunda. Eitt af stærstu verkefnum borgarinnar sé að vanda gæði og að hafa jákvæð áhrif á heilbrigði barna sem borða stóran hluta sinna máltíða í leikskólum og skólum Reykjavíkur.
Handbók fyrir skólamötuneyti

HANDBÓK FYRIR SKÓLAMÖTUNEYTI

Vísir greindi frá !