Innes hefur sölu á úrvals Iberico grísakjöti frá César Nieto

04.05.2026

Innnes hefur hafið sölu og dreifingu á Iberico grísakjöti frá hinum virta framleiðanda César Nieto á Spáni.
Kjötið frá César Nieto er boðið á mörgum af bestu veitingastöðum heims og hafa vörur César Nieto unnið til fjölmargra verðlauna. 

Má þar meðal annars nefna að árið 2024 hlaut Jamón de Bellota 100% hráskinkan frá César Nieto verðlaun Great Taste, Golden Fork sem besta matvara sem framleidd er á Spáni.
César Nieto er spænskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur ræktað Íberíusvín í yfir 100 ár og framleitt úr þeim úrvals kjötvörur í hæsta gæðaflokki. Fyrirtækið var stofnað árið 1895 og var brautryðjandi í svínarækt í Guijuleo héraði og lagði grunninn að þeim gæðastaðli sem í dag er kenndur við héraðið og fá einungis albestu vörur hina virðulegu D.O.P. Guijuelo vottun sem er elsta upprunavottun fyrir Íberíukjöt á Spáni.
Í dag er fyrirtækinu stýrt af fimmtu kynslóð Nieto fjölskyldunnar sem enn vinnur eftir hinum aldagömlu gildum fyrirtækisins sem tryggir fullkomin gæði.
César Nieto eru staðsettir í hjarta Íberíu, um það bil 1000 metrum yfir sjávarmáli á stað þar sem náttúra og loftslag skapa hinar fullkomnu aðstæður til framleiðslunnar. Í hinum víðáttumiklu eikarskógum sunnan Salamanca við rætur Sierra de Gredos ala César Nieto Íberísku svínin sín, þar sem þau ganga um frjáls og nærast á akörnum sem gefur kjötinu sína einstöku fitusprengingu og hið óviðjafnalega hnetukennda og fágaða bragð.

Þú finnur vörur César Nieto í vefverslun Innnes.