Heimsókn í Lindsay

05.11.2026

Seinnipart fimmtudagsins var okkur boðið í heimsók til Lindsay heildverslur en þetta fyrirtæki er mikill velunnari félagsins og þar er ávalt tekið á móti okkur með miklum höfðingskap. Stefán Guðjónsson forstjóri tók á móti okkur ásamt sínu fólki og 

fór yfir sögu fyrirtækisins sem er 100 ára um þessar mundir og því frá mörgu að segja frá. Hann sagði frá vexti fyrirtækisins og t.d að þeir væru nýlega búinn að festa kaup á Pottagöldrum þeim góðu kryddvörum, en lindsay er með mikla flóru í sínu vöruflokkum. Okkur var síðan boðið uppá glæslilegt hlaðborð og drykki með glæsilega fram borið og vel útilátið, að síðustu en ekki síst steig Andri Ívarsson gítarleikari og uppistandari á svið og flutti okkur mjög skemmtilegt atriði, enda frábær skemmtikraftur þar á ferð.

Við í félaginu þökkum Lindsay velvildina í okkar garð og frábærar móttökur ein og ávalt þegar við höfum heimsótt þetta frábæra fyrirtæki !

 

TS.